Jólabréf 2010

Kæru foreldrar og nemendur í Síðuskóla Nú er aðventan gengin í garð og jólin nálgast. Það er verið að skreyta skólann og nemendur að vinna að ýmsum verkefnum tengdum þessum árstíma. Verkefnin eru breytileg  eftir árgöngum og sem dæmi má nefna lestur jólabóka á bókasafninu, 6. bekkur æfir jólaleikrit, nokkrir árgangar baka laufabrauð og ekki má gleyma jólaföndri. Aðventuferðir í Minjasafns- og Glerárkirkju tilheyra þessum árstíma líka. Litlu jólin Litlu jólin eru 20. desember. Nemendum er skipt í tvo hópa. Fyrri hópurinn kemur klukkan 8:30 og sá seinni klukkan 10:30. Niðurröðun bekkja má sjá hér á eftir og einnig á heimasíðunni. Litlu jólin verða með svipuðu sniði og undanfarin ár. Nemendur hlusta á jólahugvekju, horfa á jólaleikrit 6. bekkjar og í íþróttasalnum dönsum við í kringum jólatréð. Nemendur fara síðan með umsjónarkennurum í bekkjastofur og eiga þar góða stund saman. Jólasveinar koma í stofurnar með glaðning handa þeim. Nemendum er frjálst að senda bekkjarfélögum jólakort en póstkassar verða fyrir hvern bekk. Niðurröðun bekkja á litlu jólin Kl. 8: 30 2. bekkur, 3. bekkur, 4. bekkur TS5. bekkur SB, 6. bekkur JÁ, 8. Bekkur9. bekkur B, 10. bekkur KLM. Kl. 10:30 1. bekkur, 4. bekkur ASR5. bekkur ÁEK,  6. bekkur HH7. bekkur, 9. bekkur HF, 10. bekkur SA. Þeir sem ætla að nýta sér frístund fyrir hádegi þann 20. desember eru beðnir um að hafa samband við Jóhönnu Jessen í síma 4613473 eða á netfangið sidufristund@akmennt.is fyrir 16. desember. Skólinn hefst aftur eftir jólaleyfi þriðjudaginn 4. janúar klukkan 8:00. Viðtalsdagar í Síðuskóla eru 10.og 11. janúar 2011. 1.-6. bekkur eru í viðtölum báða dagana og 10. janúar  er kennsla hjá 7.-10. bekk. 11. janúar er viðtalsdagur hjá öllum nemendum og ekki kennsla þann dag. (Sjá skýringar við skóladagatal á heimasíðu skólans). Starfsfólk Síðuskóla óskar nemendum og foreldrum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða.

Kæru foreldrar og nemendur í Síðuskóla

Nú er aðventan gengin í garð og jólin nálgast. Það er verið að skreyta skólann og nemendur að vinna að ýmsum verkefnum tengdum þessum árstíma. Verkefnin eru breytileg  eftir árgöngum og sem dæmi má nefna lestur jólabóka á bókasafninu, 6. bekkur æfir jólaleikrit, nokkrir árgangar baka laufabrauð og ekki má gleyma jólaföndri. Aðventuferðir í Minjasafns- og Glerárkirkju tilheyra þessum árstíma líka.

Litlu jólin

Litlu jólin eru 20. desember. Nemendum er skipt í tvo hópa. Fyrri hópurinn kemur klukkan 8:30 og sá seinni klukkan 10:30. Niðurröðun bekkja má sjá hér á eftir og einnig á heimasíðunni. Litlu jólin verða með svipuðu sniði og undanfarin ár. Nemendur hlusta á jólahugvekju, horfa á jólaleikrit 6. bekkjar og í íþróttasalnum dönsum við í kringum jólatréð. Nemendur fara síðan með umsjónarkennurum í bekkjastofur og eiga þar góða stund saman. Jólasveinar koma í stofurnar með glaðning handa þeim. Nemendum er frjálst að senda bekkjarfélögum jólakort en póstkassar verða fyrir hvern bekk.

Niðurröðun bekkja á litlu jólin

Kl. 8: 30

2. bekkur, 3. bekkur, 4. bekkur TS
5. bekkur SB, 6. bekkur JÁ, 8. Bekkur
9. bekkur B, 10. bekkur KLM.

Kl. 10:30

1. bekkur, 4. bekkur ASR
5. bekkur ÁEK,  6. bekkur HH
7. bekkur, 9. bekkur HF, 10. bekkur SA.

Þeir sem ætla að nýta sér frístund fyrir hádegi þann 20. desember eru beðnir um að hafa samband við Jóhönnu Jessen í síma 4613473 eða á netfangið sidufristund@akmennt.is fyrir 16. desember.

Skólinn hefst aftur eftir jólaleyfi þriðjudaginn 4. janúar klukkan 8:00.

Viðtalsdagar í Síðuskóla eru 10.og 11. janúar 2011.

1.-6. bekkur eru í viðtölum báða dagana og 10. janúar  er kennsla hjá 7.-10. bekk. 11. janúar er viðtalsdagur hjá öllum nemendum og ekki kennsla þann dag. (Sjá skýringar við skóladagatal á heimasíðu skólans).

Starfsfólk Síðuskóla óskar nemendum og foreldrum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða.