Afmælisgjöf til Akureyrarbæjar

Teppin afhent á sal
Teppin afhent á sal
Nemendur 5. bekkjar (árgangur 2001) gerðu vegleg teppi á skólaárinu 2011-2012 í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Þriðjudaginn 12. febrúar fór fram formleg afhending á teppunum til Minjasafns Akureyrar þar sem allur skólinn mætti á sal og fylgdist með. Hulda Karen Ingvarsdóttir flutti stutt ávarp og sagði frá sögu teppanna og afhenti þau með aðstoð fjögurra bekkjarfélaga. Teppin voru unnin í textilmennt, nemendur hönnuðu, klipptu og saumuðu í saumavélum og eiga teppin að lýsa fjölbreytileika mannlífsins á Akureyri og þegar við komum saman myndum við eina heild. Hér má sjá myndir frá afhendingunni og einnig þegar nemendur skráðu allir nöfnin sín í sérstakt skjal sem verður varðveitt á Minjasafninu með teppunum.  

Nemendur 5. bekkjar (árgangur 2001) gerðu vegleg teppi á skólaárinu 2011-2012 í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Þriðjudaginn 12. febrúar fór fram formleg afhending á teppunum til Minjasafns Akureyrar þar sem allur skólinn mætti á sal og fylgdist með. Hulda Karen Ingvarsdóttir flutti stutt ávarp og sagði frá sögu teppanna og afhenti þau með aðstoð fjögurra bekkjarfélaga.


Teppin voru unnin í textilmennt, nemendur hönnuðu, klipptu og saumuðu í saumavélum og eiga teppin að lýsa fjölbreytileika mannlífsins á Akureyri og þegar við komum saman myndum við eina heild. Hér má sjá myndir frá afhendingunni og einnig þegar nemendur skráðu allir nöfnin sín í sérstakt skjal sem verður varðveitt á Minjasafninu með teppunum.