Grenndargralið 2012

Leitin að Grenndargralinu 2012 er hafin!  Leit nemenda að Grenndargralinu er hafin fimmta árið í röð. Þátttakendur eru nemendur í 8.-10.bekk í grunnskólum á Akureyri. Nemendur í Giljaskóla leituðu að gralinu í fyrsta skipti haustið 2008. Árið 2009 tók Síðuskóli líka þátt. Það ár fundu gralið þær Guðrún Baldvinsdóttir og Lovísa Rut Stefánsdóttir nemendur við skólann. Síðan þá hefur Síðuskóli tekið þátt og fleiri skólar hafa jafnframt bæst í hópinn. Takmark þátttakenda er að finna bikar, hið svokallaða Grenndargral, sem búið er að koma fyrir á vissumstað á Akureyri. Leitin að gralinu tekur 10 vikur og hún fer þannig fram að nemendur, ýmist einir eða tveir saman, fá eina þraut til lausnar í viku hverri. Þraut sem tengist sögu eða menningu Akureyrar og/eða Eyjafjarðar. Við lausn hverrar þrautar fá nemendur einn bókstaf. Markmið þeirra er að safna að lágmarki tíu bókstöfum sem fást við úrlausn þrautanna sem þeir svo nota til aðmynda ákveðið orð. Orðið er nokkurs konar lykilorð og er þekkt úr sögu Eyjafjarðar. Þegar krakkarnir ná að raða saman bókstöfunum og mynda sjálft lykilorðið öðlast þeir rétt til að hefja leit að Grenndargralinu. Þrautirnar tíu munu birtast á heimasíðu Leitarinnar á föstudögum auk þess sem fréttir og tilkynningar munu birtast á facebook-síðu Leitarinnar. Öll vinna nemenda fer fram utan skólatíma og því er um frjálsa þátttöku að ræða. Allar upplýsingar um Leitina má finna á heimasíðu verkefnisins www.grenndargral.is. Framundan eru 10 vikur fullar af spennandi viðfangsefnum og ljóst að keppnin harðnar með hverju árinu. Við viljum hvetja foreldra og aðra sem koma að uppeldi þeirra sem taka þátt í Leitinni til að aðstoða þau við úrvinnslu þrautanna. Leitin er góður vettvangur fyrir fjölskylduna að koma saman og vinna að sameiginlegu verkefni þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Allir geta tekið þátt. Umsjónarmaður Leitarinnar í Síðuskóla er Sigrún Sigurðardóttir kennari á unglingastigi.

Leitin að Grenndargralinu 2012 er hafin! 

Leit nemenda að Grenndargralinu er hafin fimmta árið í röð. Þátttakendur eru nemendur í 8.-10.bekk í grunnskólum á Akureyri. Nemendur í Giljaskóla leituðu að gralinu í fyrsta skipti haustið 2008. Árið 2009 tók Síðuskóli líka þátt. Það ár fundu gralið þær Guðrún Baldvinsdóttir og Lovísa Rut Stefánsdóttir nemendur við skólann. Síðan þá hefur Síðuskóli tekið þátt og fleiri skólar hafa jafnframt bæst í hópinn.

Takmark þátttakenda er að finna bikar, hið svokallaða Grenndargral, sem búið er að koma fyrir á vissumstað á Akureyri. Leitin að gralinu tekur 10 vikur og hún fer þannig fram að nemendur, ýmist einir eða tveir saman, fá eina þraut til lausnar í viku hverri. Þraut sem tengist sögu eða menningu Akureyrar og/eða Eyjafjarðar. Við lausn hverrar þrautar fá nemendur einn bókstaf. Markmið þeirra er að safna að lágmarki tíu bókstöfum sem fást við úrlausn þrautanna sem þeir svo nota til aðmynda ákveðið orð. Orðið er nokkurs konar lykilorð og er þekkt úr sögu Eyjafjarðar. Þegar krakkarnir ná að raða saman bókstöfunum og mynda sjálft lykilorðið öðlast þeir rétt til að hefja leit að Grenndargralinu.

Þrautirnar tíu munu birtast á heimasíðu Leitarinnar á föstudögum auk þess sem fréttir og tilkynningar munu birtast á facebook-síðu Leitarinnar. Öll vinna nemenda fer fram utan skólatíma og því er um frjálsa þátttöku að ræða. Allar upplýsingar um Leitina má finna á heimasíðu verkefnisins www.grenndargral.is.

Framundan eru 10 vikur fullar af spennandi viðfangsefnum og ljóst að keppnin harðnar með hverju árinu. Við viljum hvetja foreldra og aðra sem koma að uppeldi þeirra sem taka þátt í Leitinni til að aðstoða þau við úrvinnslu þrautanna. Leitin er góður vettvangur fyrir fjölskylduna að koma saman og vinna að sameiginlegu verkefni þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Allir geta tekið þátt.

Umsjónarmaður Leitarinnar í Síðuskóla er Sigrún Sigurðardóttir kennari á unglingastigi.