Fréttabréf Síðuskóla lítur nú í fyrsta sinn dagsins ljós á þessu formi. Því er ætlað að vera samskiptavettvangur skólans við foreldra og nemendur þar sem allir aðilar geta komið á framfæri upplýsingum og fræðslu eða komið með athugasemdir sem varða skólastarfið á sem fjölbreyttastan hátt.
Það er von okkar að þetta sé enn eitt sporið í þá átt að efla samskipti heimila og skóla.
Í von um góðar undirtektir.
Stjórnendur