Með sumarkveðju

Nú er skólaárið á enda og lauk því með umhverfisdögum þar sem námið fór fram utandyra. Það má með sanni segja að veðrið hafi leikið við okkur þessa daga en seinni daginn var endað á grillveislu í stóra inngarðinum. Hér má sjá myndir frá henni. Útskrifaðir voru 42 nemendur frá skólanum og óskum við þeim til hamingju og velfarnaðar á nýjum vettvangi. Að lokum viljum við þakka ykkur fyrir ánægjulegt samstarf í vetur og vonum að þið hafið það gott í sumarleyfinu. Skólinn hefst að nýju með skólasetningu þann 22. ágúst. Með sumarkveðju Starfsfólk Síðuskóla

Nú er skólaárið á enda og lauk því með umhverfisdögum þar sem námið fór fram utandyra. Það má með sanni segja að veðrið hafi leikið við okkur þessa daga en seinni daginn var endað á grillveislu í stóra inngarðinum. Hér má sjá myndir frá henni.

Útskrifaðir voru 42 nemendur frá skólanum og óskum við þeim til hamingju og velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Að lokum viljum við þakka ykkur fyrir ánægjulegt samstarf í vetur og vonum að þið hafið það gott í sumarleyfinu. Skólinn hefst að nýju með skólasetningu þann 22. ágúst.

Með sumarkveðju

Starfsfólk Síðuskóla