Við hvetjum til lesturs

Risaeðlur í Reykjavík
Risaeðlur í Reykjavík
Það er allskonar lestrarátak og lestraráskorun í gangi í Síðuskóla og víðar. Þann 1. október hófst lestrarátak Ævars vísindamanns, en það er fyrir 1.- 7. bekk um allt land. Þetta átak stendur yfir til 1. febrúar þannig að það er nógur tími ennþá til að taka þátt. Fyrir hverjar 3 bækur sem nemandi les getur hann sent inn miða og verður dregið úr öllum miðum 5. febrúar 2015. Hægt er að skila miðum í kassa við bókasafn Síðuskóla. Þeir sem verða dregnar út verða persónur í næstu bók Ævars vísindamanns, Bernskubrek Ævars vísindamanns: Risaeðlur í Reykjavík. Sjá nánar á heimasíðu Ævars. 17. október fór síðan af stað átakið Allir lesa - landsleikur í lestri. Það er fyrir alla landsmenn og fyrirkomulagið svipað og í keppninni Hjólað í vinnuna. Heimasíða Allir lesa.   Það eru allir hvattir til að taka þátt í lestrinum.  Hægt er að skrá sömu bækur í bæði átökin, en í átakinu Allir lesa er það spurning um hversu miklum tíma er varið í lestur.

Það er allskonar lestrarátak og lestraráskorun í gangi í Síðuskóla og víðar. Þann 1. október hófst lestrarátak Ævars vísindamanns, en það er fyrir 1.- 7. bekk um allt land. Þetta átak stendur yfir til 1. febrúar þannig að það er nógur tími ennþá til að taka þátt. Fyrir hverjar 3 bækur sem nemandi les getur hann sent inn miða og verður dregið úr öllum miðum 5. febrúar 2015. Hægt er að skila miðum í kassa við bókasafn Síðuskóla. Þeir sem verða dregnar út verða persónur í næstu bók Ævars vísindamanns, Bernskubrek Ævars vísindamanns: Risaeðlur í Reykjavík. Sjá nánar á heimasíðu Ævars.

17. október fór síðan af stað átakið Allir lesa - landsleikur í lestri. Það er fyrir alla landsmenn og fyrirkomulagið svipað og í keppninni Hjólað í vinnuna. Heimasíða Allir lesa.  

Það eru allir hvattir til að taka þátt í lestrinum.  Hægt er að skrá sömu bækur í bæði átökin, en í átakinu Allir lesa er það spurning um hversu miklum tíma er varið í lestur.