Alþjóðlegur dagur einhverfunnar er laugardaginn 2. apríl og
föstudaginn 1.apríl næstkomandi hvetjum við alla til að klæðast bláu og vekja
þannig athygli á málefnum einhverfra barna en blái liturinn hefur fest sig í
sessi sem litur einhverfunnar um heim allan. Líkt og undanfarin ár er það BLÁR
APRÍL - Styrktarfélag barna með einhverfu, sem stendur fyrir deginum.
Markmið bláa dagsins er að vekja athygli á einhverfu og fá landsmenn alla til
að sýna einhverfum stuðning sinn. Með aukinni vitund og þekkingu á einhverfu
byggjum við upp samfélag sem er betur í stakk búið til að skilja þarfir
einhverfra og virða framlag þeirra til samfélagsins.
Við
hlökkum til að sjá ykkur öll í bláu föstudaginn 1. apríl. Stöndum saman og
fögnum fjölbreytileikanum. Því lífið er blátt á mismunandi hátt!