Útivistardagur

Þriðjudaginn 5. apríl var útivistardagur Síðuskóla. Þar fóru allir nemendur, kennarar og annað starfsfólk skólans í Hlíðarfjall og skemmtu sér saman. Sumir renndu sér á skíðum á meðan aðrir sýndu listir sínar á snjóbrettum. Einhverjir brugðu síðan undir sig betri fætinum og gengu ásamt kennurum í Strýtuskála og borðuðu nestið sitt þar. Ekki var annað að sjá en allir skemmtu sér vel þennan dag í ágætu veðri og góðu færi í fjallinu. Einhverjir hlutu þó slæma byltu og óskum við þeim góðs bata og vonum að þeir nái fullri heilsu fljótt aftur. Á meðfylgjandi myndum sem Gulli smíðakennari tók má sjá hvar gleðin skín af hverju andliti.

Þriðjudaginn 5. apríl var útivistardagur Síðuskóla. Þar fóru allir nemendur, kennarar og annað starfsfólk skólans í Hlíðarfjall og skemmtu sér saman. Sumir renndu sér á skíðum á meðan aðrir sýndu listir sínar á snjóbrettum. Einhverjir brugðu síðan undir sig betri fætinum og gengu ásamt kennurum í Strýtuskála og borðuðu nestið sitt þar.

Ekki var annað að sjá en allir skemmtu sér vel þennan dag í ágætu veðri og góðu færi í fjallinu. Einhverjir hlutu þó slæma byltu og óskum við þeim góðs bata og vonum að þeir nái fullri heilsu fljótt aftur.

Á meðfylgjandi myndum sem Gulli smíðakennari tók má sjá hvar gleðin skín af hverju andliti.