Skólabyrjun

Ágætu foreldrar / forráðamenn nemenda í Síðuskóla Senn líður að skólabyrjun en skólinn verður settur þann 22. ágúst. Undanfarin ár höfum við hafið skólastarfið á viðtölum við alla nemendur og foreldra en nú verður breyting á því. Að venju verða foreldrar barna sem eru að byrja í 1. bekk boðaðir í viðtal með bréfi frá umsjónarkennurum. Aðrir árgangar mæta á sal skólans sem hér segir:   2. - 4. bekkur mætir kl. 9:00       5. - 7. bekkur mætir kl. 9:30      8. - 10. bekkur mætir kl. 10:00   Á sal verður rætt stuttlega við nemendur og þeir fara síðan með umsjónarkennurum sínum í stofur og fá þar stundatöflur og kynningu á því sem framundan er. Foreldrar eru hvattir til að koma með börnum sínum á skólasetninguna. Foreldrar barna sem verða í Frístund eru minntir á að koma í skólann og  staðfesta vistunartíma barna sinna þann 13. ágúst og skrifa undir vistunarsamning.  

Ágætu foreldrar / forráðamenn nemenda í Síðuskóla

Senn líður að skólabyrjun en skólinn verður settur þann 22. ágúst. Undanfarin ár höfum við hafið skólastarfið á viðtölum við alla nemendur og foreldra en nú verður breyting á því. Að venju verða foreldrar barna sem eru að byrja í 1. bekk boðaðir í viðtal með bréfi frá umsjónarkennurum. Aðrir árgangar mæta á sal skólans sem hér segir:

 

2. - 4. bekkur mætir kl. 9:00       5. - 7. bekkur mætir kl. 9:30      8. - 10. bekkur mætir kl. 10:00

 

Á sal verður rætt stuttlega við nemendur og þeir fara síðan með umsjónarkennurum sínum í stofur og fá þar stundatöflur og kynningu á því sem framundan er. Foreldrar eru hvattir til að koma með börnum sínum á skólasetninguna. Foreldrar barna sem verða í Frístund eru minntir á að koma í skólann og  staðfesta vistunartíma barna sinna þann 13. ágúst og skrifa undir vistunarsamning.