Reiðhjólanotkun

Landsamband hjólreiðamanna (LSH) sendi skólum landsins ósk um aðstoð við að kanna reiðhjólanotkun grunn- og framhaldsskólanema á þessu skólaári. Um er að ræða mánaðarlega talningu hjóla og upplýsingar um viðeigandi geymslubúnað s.s. hjólagrindur, við skólann.  Fyrsta talning fór fram á vegum sérdeildar og er skemmst frá því að segja að hjólin voru 104 talsins og hjólagrindurnar 110. Hins vegar eru þær illa nýttar. Ennfremur er eftirtektarvert hversu mörg hjólin voru án ljósabúnaðar og bjöllu sem er áhyggjuefni þar sem mikið myrkur er úti þegar við leggjum af stað í skólann á morgnana.  Þetta er skemmtilegt verkefni sem áhugavert verður að fylgjast með.

Landsamband hjólreiðamanna (LSH) sendi skólum landsins ósk um aðstoð við að kanna reiðhjólanotkun grunn- og framhaldsskólanema á þessu skólaári. Um er að ræða mánaðarlega talningu hjóla og upplýsingar um viðeigandi geymslubúnað s.s. hjólagrindur, við skólann. 

Fyrsta talning fór fram á vegum sérdeildar og er skemmst frá því að segja að hjólin voru 104 talsins og hjólagrindurnar 110. Hins vegar eru þær illa nýttar. Ennfremur er eftirtektarvert hversu mörg hjólin voru án ljósabúnaðar og bjöllu sem er áhyggjuefni þar sem mikið myrkur er úti þegar við leggjum af stað í skólann á morgnana. 

Þetta er skemmtilegt verkefni sem áhugavert verður að fylgjast með.