Þann sjöunda febrúar afhentu nemendur úr grunnskólum Akureyrar, í valáfanganum Fatahönnun og endurnýting afrakstur vinnu sinnar á haustönn, til Rauðakrossins. Skoða má umfjöllun um afhendinguna á heimasíðu Rauðakrossins hér.
Þetta er þriðja árið sem Síðuskóli tekur þátt í verkefninu sem heitir Föt sem framlag. Í vetur tóku þátt 9 stúlkur úr 8. 9. og 10.bekk og þær saumuðu ungbarnateppi og barnaföt. Segja má að áfanginn sé í senn kennsla í saumaskap og samfélags- og lífsleiknifræðsla. Þar sem skólinn er Grænfánaskóli þá fellur þessi áfangi vel að þeim markmiðum sem þar er unnið að, því gömul föt eru endurnýtt.
Fleiri myndir má finna hér.