Í nýliðnum foreldraviðtölum stóð jafnréttisnefnd Síðuskóla fyrir könnun. Umsjónarkennarar skráðu hjá sér hverjir komu með nemendum í viðtölin. Þetta var gert til að kanna kynjahlutföll forráðamanna sem komu með nemendum.
Niðurstöður eru eftirfarandi:
Í 51% viðtala mættu eingöngu mæður.
Í 43% viðtala mættu báðir foreldrar.
Í 6% tilvika mættu eingöngu feður.
Þetta merkir að í 94% tilfella mættu mæður en í 49% tilfella mættu feður.
Fróðlegt verður að fylgjast með þróun á þessum tölum á næstu árum.