Getaverkefni - Myndir

Hér eru sýnishorn af verkefnum sem 4. og 5. bekkir unnu saman í náttúrufræði. Unnið var með fugla  og í tengslum við GETA-verkefnið sem er þróunarverkefni hér í skólanum í umhverfismennt. GETA er liður í alþjóðlegri viðleitni til að efla og útbreiða menntun til sjálfbærrar þróunar . Markmiðið er að: o   Skapa þekkingu og færni í þágu menntunar til sjálfbærni heima og heiman o   Stuðla að aukinni virðingu fyrir náttúru og umhverfi, fyrir margbreytni og gildum sem stuðla að sjálfbærni í samskiptum mannsins við umhverfi sitt og innbyrðis á milli manna og samfélaga. o   Efla skilning á samábyrgð okkar á framtíð mannkyns og að komandi kynslóðir  hafi möguleika á að fullnægja þörfum sínum. Meðal verkefna sem nemendur unnu er skilti sem leiðbeina á um umgengni á varplandi fugla og auglýsingabæklingur fyrir veiðimenn.  En myndirnar tala sínu máli. Myndirnar má sjá hér.
Hér eru sýnishorn af verkefnum sem 4. og 5. bekkir unnu saman í náttúrufræði. Unnið var með fugla  og í tengslum við GETA-verkefnið sem er þróunarverkefni hér í skólanum í umhverfismennt. GETA er liður í alþjóðlegri viðleitni til að efla og útbreiða menntun til sjálfbærrar þróunar .

Markmiðið er að:

o   Skapa þekkingu og færni í þágu menntunar til sjálfbærni heima og heiman

o   Stuðla að aukinni virðingu fyrir náttúru og umhverfi, fyrir margbreytni og gildum sem stuðla að sjálfbærni í samskiptum mannsins við umhverfi sitt og innbyrðis á milli manna og samfélaga.

o   Efla skilning á samábyrgð okkar á framtíð mannkyns og að komandi kynslóðir  hafi möguleika á að fullnægja þörfum sínum.

Meðal verkefna sem nemendur unnu er skilti sem leiðbeina á um umgengni á varplandi fugla og auglýsingabæklingur fyrir veiðimenn.  En myndirnar tala sínu máli.

Myndirnar má sjá hér.