Kæru foreldrar og forráðamenn.
Þemadögum var að ljúka hjá okkur og fóru þeir vel fram að venju. Nemendur unnu mörg skemmtileg verkefni, fóru í vettvangsferðir og fengum við marga góða gesti í skólann. Myndir frá þemadögum má sjá hér.
Nú er komið að haustfríi mánudag og þriðjudag 24. og 25. október. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að gera sér dagamun með börnum sínum og njóti vel þessara daga.
Frístund verður opin frá klukkan 8:00 – 16:00 fyrir þá sem þurfa að nýta sér þá þjónustu og hafa pantað. Skólastarf hefst aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 26. október.
Með haustkveðju, starfsfólk Síðuskóla.