Danmerkurferð nemenda í dönskuvali

Vikuna 14. til 21. apríl dvöldu 7 nemendur úr 10.bekk í Síðuskóla, í Árósum í Danmörku ásamt 15 nemendum úr Glerár- og Giljaskóla. Nemendurnir hafa verið í dönskuvali í vetur en það  byrjaði í haust með heimsókn barna úr Børnenes Friskole í Árósum til okkar. Ferðin okkar var fjármögnuð með styrk frá Nordplus junior, en auk þess fékk hópurinn styrk frá Kjarnafæði og Norðurorku. Skólarnir þrír hafa einnig styrkt verkefnið. Krakkarnir dvöldu á dönskum heimilum stóran hluta ferðarinnar og fengu þannig að upplifa danska siði og venjur.  Vikan var mjög viðburðarík, krakkarnir kynntu m.a. þau verkefni sem þeir hafa unnið í vetur, fóru í heimsókn á Aros listasafnið og í Den gamle by, þar sem unnin voru verkefni og farið í ratleik. Vinabær Akureyrar, Randers, bauð hópnum í Randers Regnskov sem var mikil upplifun fyrir alla. Ekki má gleyma viðkomu i Tivoli Friheden en þar skemmtu krakkarnir sér konunglega. Síðasta kvöldið komu allir saman á sveitabæ, heima hjá einum nemandanum og voru grillaðar pylsur og krakkarnir fengu að baka sér snobrød  yfir opnum  eldi. Danska rúgbrauðið fór vel í flesta og allir komu glaðir heim reynslunni ríkari og danskari en áður með margar góðar minningar í farteskinu. Sjá myndir

Vikuna 14. til 21. apríl dvöldu 7 nemendur úr 10.bekk í Síðuskóla, í Árósum í Danmörku ásamt 15 nemendum úr Glerár- og Giljaskóla. Nemendurnir hafa verið í dönskuvali í vetur en það  byrjaði í haust með heimsókn barna úr Børnenes Friskole í Árósum til okkar. Ferðin okkar var fjármögnuð með styrk frá Nordplus junior, en auk þess fékk hópurinn styrk frá Kjarnafæði og Norðurorku. Skólarnir þrír hafa einnig styrkt verkefnið.

Krakkarnir dvöldu á dönskum heimilum stóran hluta ferðarinnar og fengu þannig að upplifa danska siði og venjur.  Vikan var mjög viðburðarík, krakkarnir kynntu m.a. þau verkefni sem þeir hafa unnið í vetur, fóru í heimsókn á Aros listasafnið og í Den gamle by, þar sem unnin voru verkefni og farið í ratleik. Vinabær Akureyrar, Randers, bauð hópnum í Randers Regnskov sem var mikil upplifun fyrir alla. Ekki má gleyma viðkomu i Tivoli Friheden en þar skemmtu krakkarnir sér konunglega.

Síðasta kvöldið komu allir saman á sveitabæ, heima hjá einum nemandanum og voru grillaðar pylsur og krakkarnir fengu að baka sér snobrød  yfir opnum  eldi.

Danska rúgbrauðið fór vel í flesta og allir komu glaðir heim reynslunni ríkari og danskari en áður með margar góðar minningar í farteskinu.

Sjá myndir