Bókaverðlaun barnanna

Bókarkápa - Þín eigin þjóðsaga
Bókarkápa - Þín eigin þjóðsaga
Bókaverðlaun barnanna voru afhent í Borgarbókasafninu í Grófinni sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl. Verðlaunin eru afhent einu sinni á ári og öll börn á landinu geta tekið þátt í valinu. Þær bækur hljóta verðlaunin sem fá flest atkvæði, svo einfalt er það. Þá eru nokkrir krakkar, sem taka þátt í kjörinu, valdir af handahófi og hljóta viðurkenningu fyrir. Í ár eru það bækurnar Þín eigin þjóðsaga eftir Ævar Þór Benediktsson (Forlagið gaf út) og Dagbók Kidda klaufa: Kaldur vetur eftir Jeff Kinney (Tindur gaf út), í þýðingu Helga Jónssonar, sem hljóta verðlaunin. Þeir Ævar og Helgi tóku á móti verðlaununum og hittu nokkra af krökkunum sem fengu viðurkenningu í ár.  Á Akureyri og nágrenni var einn nemandi í hverjum grunnskóla dreginn út. Í Síðuskóla var sá heppni Elvar Máni Ólafsson í 6. bekk og fékk hann í verðlaun bestu íslensku barnabókina að mati nemenda, Þín eigin þjóðsaga eftir Ævar Þór Benediktsson. Úrslit á Norðurlandi eru aftirfarandi  1.     Þín eigin þjóðsaga 149 atkvæði 2.     Gula spjaldið í Gautaborg   141 atkvæði  3.     Dagbók Kidda klaufa 6  107 atkvæði 4.     Rottuborgari    77 atkvæði 5.     Hjálp      75 atkvæði 6.     Fjörfræðibók Sveppa    73 atkvæði 7.     Vísindabók Villa 2    68 atkvæði 8.     Skrifað í stjörnurnar    67 atkvæði 9.     Paddington  65 atkvæði 10.  Fótboltaspurningar   44 atkvæði Fjöldi skóla sem tók þátt var 6 og einnig tóku gestir Amstbókasafnsins á Akureyri þátt. Fjöldi nemenda sem tóku þátt var 626. Hér má sjá nokkrar myndir.

Bókaverðlaun barnanna voru afhent í Borgarbókasafninu í Grófinni sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl. Verðlaunin eru afhent einu sinni á ári og öll börn á landinu geta tekið þátt í valinu. Þær bækur hljóta verðlaunin sem fá flest atkvæði, svo einfalt er það. Þá eru nokkrir krakkar, sem taka þátt í kjörinu, valdir af handahófi og hljóta viðurkenningu fyrir. Í ár eru það bækurnar Þín eigin þjóðsaga eftir Ævar Þór Benediktsson (Forlagið gaf út) og Dagbók Kidda klaufa: Kaldur vetur eftir Jeff Kinney (Tindur gaf út), í þýðingu Helga Jónssonar, sem hljóta verðlaunin. Þeir Ævar og Helgi tóku á móti verðlaununum og hittu nokkra af krökkunum sem fengu viðurkenningu í ár. 

Á Akureyri og nágrenni var einn nemandi í hverjum grunnskóla dreginn út. Í Síðuskóla var sá heppni Elvar Máni Ólafsson í 6. bekk og fékk hann í verðlaun bestu íslensku barnabókina að mati nemenda, Þín eigin þjóðsaga eftir Ævar Þór Benediktsson.

Úrslit á Norðurlandi eru aftirfarandi

 1.     Þín eigin þjóðsaga 149 atkvæði
 2.     Gula spjaldið í Gautaborg   141 atkvæði 
 3.     Dagbók Kidda klaufa 6  107 atkvæði
 4.     Rottuborgari    77 atkvæði
 5.     Hjálp      75 atkvæði
 6.     Fjörfræðibók Sveppa    73 atkvæði
 7.     Vísindabók Villa 2    68 atkvæði
 8.     Skrifað í stjörnurnar    67 atkvæði
 9.     Paddington  65 atkvæði
 10.  Fótboltaspurningar   44 atkvæði

Fjöldi skóla sem tók þátt var 6 og einnig tóku gestir Amstbókasafnsins á Akureyri þátt. Fjöldi nemenda sem tóku þátt var 626. Hér má sjá nokkrar myndir.