Í tilefni af 25 ára afmæli Síðuskóla verður haldin hátíð þann 5. september í skólanum. Margt skemmtilegt og spennandi verður í boði á hátíðinni s.s. hoppkastali, leikir á skólalóð, spákonur og andlitsmálun. Annað sem verður í boði:
Slökkviliðsmenn verða með slökkvibíl til sýnis.
Árlega tombólan okkar – óbreytt miðaverð kr. 50,-
Pylsusala verður í inni garðinum – verð kr. 100,- , Svali kr. 50,-
Börn í 1.bekk Síðuskóla verða boðin velkomin og þeim afhend gjöf frá foreldra- og kennarafélagi Síðuskóla
Afmæliskaka í boði Síðuskóla. Boðið verður upp á kaffi og djús með kökunni
Hátíðin hefst kl. 13.30 með skrúðgöngu og lýkur kl. 16:00.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest
Starfsfólk Síðuskóla
Foreldra- og kennarafélag Síðuskóla