Aðalfundur FOKS verður haldinn fimmtudaginn kl. 20:00 í sal skólans. Vonumst við að sjá sem flesta á fundinum. Í hléi munum við selja restina af þeim skólafötum sem keypt voru veturinn 2008-2009. Við höfum ákveðið að selja þau mjög ódýrt. Reglan verður sú að fyrstur kemur fyrstur fær. Sjá nánar hér varðandi verð og hvað við eigum mikið eftir.
Dagskrá aðalfundar:
1. Ávarp skólastjóra
2. Skýrsla stjórnar
3. Skýrsla gjaldkera
4. – Kaffihlé –
5. Kosning í stjórn (það vantar 2 nýja í stjórn)
6. Breyting á lögum félagsins
7. Önnur mál