Á skíðum skemmti ég mér...

Það getur verið býsna flókið að komast í græjurnar :)
Það getur verið býsna flókið að komast í græjurnar :)
Skíðadagur Síðuskóla 2013  Útivistardagur er áætlaður mánudaginn 11. mars ef veður leyfir.  Engin hefðbundin kennsla verður þennan dag. Mæting í skólann er kl. 8:00.  Farið verður upp í Hlíðarfjall frá skólanum og fyrsta rúta leggur af stað þangað ca. 8:20.  Nemendur velja hvort þeir fara á skíði, bretti, gönguskíði, sleða, snjóþotu eða í göngutúr.  Fyrir 3. – 10. bekk er í boði að fá lánaðan búnað í fjallinu og hafa íþróttakennarar mælt stærð og skráð óskir. Yngstu nemendurnir (1. og 2. bekkur) mega koma með sinn eigin búnað ef þeir eru vanir. Gönguskíðabúnaður er í boði fyrir alla nemendur, einniöllum g 1. og 2. bekk  og því tilvalið að prófa, sérstaklega óvanir. Þessi ferð er nemendum að kostnaðarlausu! Fyrsta rúta heldur af stað heim kl ca 11:40 og sú síðasta kl 12:30 en þeir sem ætla að vera lengur verða að koma sér heim sjálfir. Nemendur þurfa að koma með skriflegt leyfi að heiman  ef þeir ætla að vera lengur en til 12.00 uppi í fjalli. Nemendur sem fá lánaðan búnað í fjallinu geta ekki verið lengur en fram að hádegi. Skóladegi lýkur 13:15 og nemendur í frístund fara þangað. Nemendur sem eru skráðir í mat borða þegar þeir koma úr fjallinu.  Munið eftir næringaríku og góðu  nesti og að klæða sig vel! Hjálmaskylda er þennan dag og  engar undantekningar leyfðar. Hægt er að fá lánaða hjálma í fjallinu.

Skíðadagur Síðuskóla 2013

 Útivistardagur er áætlaður mánudaginn 11. mars ef veður leyfir.  Engin hefðbundin kennsla verður þennan dag. Mæting í skólann er kl. 8:00.  Farið verður upp í Hlíðarfjall frá skólanum og fyrsta rúta leggur af stað þangað ca. 8:20. 

Nemendur velja hvort þeir fara á skíði, bretti, gönguskíði, sleða, snjóþotu eða í göngutúr.  Fyrir 3. – 10. bekk er í boði að fá lánaðan búnað í fjallinu og hafa íþróttakennarar mælt stærð og skráð óskir. Yngstu nemendurnir (1. og 2. bekkur) mega koma með sinn eigin búnað ef þeir eru vanir.

Gönguskíðabúnaður er í boði fyrir alla nemendur, einniöllum g 1. og 2. bekk  og því tilvalið að prófa, sérstaklega óvanir. Þessi ferð er nemendum að kostnaðarlausu!

Fyrsta rúta heldur af stað heim kl ca 11:40 og sú síðasta kl 12:30 en þeir sem ætla að vera lengur verða að koma sér heim sjálfir. Nemendur þurfa að koma með skriflegt leyfi að heiman  ef þeir ætla að vera lengur en til 12.00 uppi í fjalli. Nemendur sem fá lánaðan búnað í fjallinu geta ekki verið lengur en fram að hádegi.

Skóladegi lýkur 13:15 og nemendur í frístund fara þangað. Nemendur sem eru skráðir í mat borða þegar þeir koma úr fjallinu. 

  • Munið eftir næringaríku og góðu  nesti og að klæða sig vel!
  • Hjálmaskylda er þennan dag og  engar undantekningar leyfðar. Hægt er að fá lánaða hjálma í fjallinu.