4. bekkur heimsótti Kiðagil

Dagana 13.-15. maí voru nemendur fjórða bekkjar í skólabúðum á Kiðagil í Bárðardal. Þeir heimsóttu fjárhúsin á Svartárkoti bæði á mánudag og þriðjudag og fengu að spreyta sig við ýmis störf tengd sauðburði. Farið var í gönguferð um staðinn og krakkarnir fræddir um húsendur og reykhúsið. Svo fengu þeir sem vildu, að fara á hestbak. Á miðvikudagsmorgun var fjósið á Halldórsstöðum heimsótt þar sem nemendur fengu að prófa að mjólka. Ferðin tókst vel og komu allir heim reynslunni ríkari. Hérna má sjá myndir úr ferðinni.

Dagana 13.-15. maí voru nemendur fjórða bekkjar í skólabúðum á Kiðagil í Bárðardal. Þeir heimsóttu fjárhúsin á Svartárkoti bæði á mánudag og þriðjudag og fengu að spreyta sig við ýmis störf tengd sauðburði.

Farið var í gönguferð um staðinn og krakkarnir fræddir um húsendur og reykhúsið. Svo fengu þeir sem vildu, að fara á hestbak. Á miðvikudagsmorgun var fjósið á Halldórsstöðum heimsótt þar sem nemendur fengu að prófa að mjólka.

Ferðin tókst vel og komu allir heim reynslunni ríkari. Hérna má sjá myndir úr ferðinni.