SMT Skólafærni
Agaferli - Reglutafla - Lausnateymi - Ársáætlun SMT
Í Síðuskóla sýnum við ábyrgð, virðingu og vináttu.
ÁBYRGÐ: Í Síðuskóla sýnum við ábyrgð með því að gera alltaf okkar besta og leggja okkur fram í leik og starfi.
VIRÐING: Í Síðuskóla sýnum við virðingu með því að vera kurteis og koma vel fram við alla í orði og verki. Við virðum okkur sjálf, aðra og umhverfið.
VINÁTTA: Í Síðuskóla sýnum við vináttu með því að hugsa vel hvert um annað, taka þátt í því sem fram fer og gæta þess að enginn sé einmana.
Síðuskóli hóf haustið 2006 innleiðslu SMT skólafærni. Markmið SMT er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks. Aðferðin leggur áherslu á leiðir til að koma í veg fyrir og draga úr hegðunarvanda með því að kenna og þjálfa félagsfærni, umbuna fyrir æskilega hegðun og samræma viðbrögð starfsfólks gagnvart nemendum sem sýna óæskilega hegðun. Nemendur sem hafa góða félagsfærni sýna síður óæskilega hegðun, eiga auðveldara með að eignast vini og leysa farsællega úr vandamálum og ágreiningsefnum. Innleiðsla SMT skólafærni tekur þrjú til fimm ár.
Hvatning – hrós
Hvatning er góð aðferð til að kenna nýja hegðun og viðhalda henni. Hvatning strax í kjölfar æskilegrar hegðunar hefur mest áhrif og eykur líkur á að hegðunin verði endurtekin og lærist smám saman. Þegar kenna á nýja hegðun er nauðsynlegt að hvatning fylgi í kjölfarið hverju sinni en aðeins endrum og sinnum ef viðhalda á mótaðri hegðun.
Hugtakið hvatning er hér notað yfir allt sem með einhverjum hætti er viðurkenning starfsfólks skólans á æskilegri hegðun barna.
Hrós er dæmi um félagslega hvatningu. Það er góð leið til að sýna börnum jákvæða athygli og til að auka tíðni æskilegrar hegðunar. Hrós má bæði nota skilyrt og óskilyrt. Þegar talað er um skilyrt hrós er það háð skilyrðum, ef – þá, og fylgir í kjölfar tiltekinnar æskilegrar hegðunar. Ef barn hengir upp úlpuna sína þá fær það hrós. Mikilvægt er að hrós ( og reyndar öll hvatning) sé skilyrt (ef – þá) ef auka á tíðni æskilegrar hegðunar. Hrósið þarf að vera nákvæmt: Gott hjá þér að ganga frá skónum þínum, í stað þess að segja aðeins: Þetta var gott hjá þér. Hrós eykur mjög sjálfstraust barna og er árangursríkt ef það er nákvæmt og hrósað er fyrir nýja og betri hegðun eða færni. Einnig skiptir máli að hrósa af jákvæðni strax í kjölfar hegðunar en ekki með neikvæðum athugasemdum. Hrós þarf að vera auðskilið og einlægt.
Nemendur Síðuskóla fá hrós fyrir æskilega hegðun og fyrir að fylgja skólareglum. Í sumum tilvikum geta nemendur fengið hrósmiða sem þeir leggja í safn bekkjarins. Þegar bekkurinn hefur náð áttfaldri bekkjarstærð af hrósmiðum fá nemendur umbun sem hefur verið fyrirfram ákveðin. Umbun getur til dæmis verið spilatími, leiktími, eða náttfatadagur. Þegar allir nemendur skólans hafa svo safnað 20000 hrósmiðum er haldin hátíð þar sem veitt er umbun sem nýtist öllum nemendum skólans.
Niðurstöður SET lista janúar 2016.
Niðurstöður SET lista í janúar 2017
Niðurstöður SET lista í janúar 2018
Niðurstöður SET lista í janúar 2019
Niðurstöður SET lista í janúar 2020
Niðurstöður SET lista í janúar 2021
Tekið úr: Styðjandi foreldrafærni