Velkomin í Síðuskóla

Síðuskóli á Akureyri

Nýjustu fréttir

Dagur íslenskrar tungu

Á degi íslenskrar tungu hittust krakkarnir í 1. og 5. bekk og unnu saman verkefni tengdum málsháttum og orðtökum. Þessi vinna var mjög skemmtileg og gefandi fyrir alla. Þessir bekkir eru vinabekkir og hittast reglulega og vinna saman.

Vinabekkur

Nemendur í 1. bekk fóru í dag eftir hádegi í heimsókn til 5. bekkjar sem er vinabekkur okkar. Nemendur spiluðu saman ýmis spil og byggðu flotta turna, byggingar, bíla og fleira úr alls konar kubbum. Eins og oft áður leið tíminn hratt og allir með tölu áttu góða stund.

Heimsókn á Krógaból - umbun

Þriðjudaginn 28. október var umbun hjá okkur og fórum við í heimsókn á Krógaból. Þar lékum við okkur í snjónum og í leiktækjunum. Það glöddust margir þegar þeir hittu félaga sína á leikskólanum og eins þegar starfsmenn leikskólans komu út til að heilsa uppá okkur. Þetta var skemmtileg heimsókn og allir stóðu sig með sóma.

Minjasafnsferð

Í vikunni fóru 1. bekkingar með strætó á Minjasafnið og skoðuðu sýninguna  Barnið á Akureyri í gamla daga. Sýningin var mjög skemmtileg og fengu börnin meðal annars fræðslu um matarvenjur hér áður fyrr og hvernig börnin léku sér. Okkar börnum þóttu leikföngin mjög merkileg. Myndir úr ferðinni eru undir myndir.


Kuggur

Nemendur í 1. bekk hafa verið að vinna með söguna um Kugg/nýir vinir samkvæmt Byrjendalæsisaðferð. Við erum búnar að setja inn myndir að því tilefni. Börnin voru afar áhugasöm og skapandi við vinnu sína.

Hjóladagur

Nemendur í 1. bekk völdu sér það sem umbun að koma á hjóli - hlaupahjóli - línuskautum í skólann. Það var einnig í boði að koma með eitthvað útidót.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

etskrift_2010_ferd_471.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 832

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn