6. bekkur heimsækir Tilraunalandið
Almennt - mánudagur 30.ágúst 2010 - Lestrar 6
Í dag fór 6. bekkur í Strætó í Hof til að heimsækja Tilraunalandið. Það samanstendur af margskonar þrautum og
skemmtilegheitum sem allir fengu að prófa, setja saman kubba og píramída, hjóla á beygjubrengluðu hjóli, teikna stjörnu í spegli,
búa til T úr mörgum mismunandi bitum, búa til vatnsgosbrunn o.fl., o.fl.
Það var mikið fjör og gaman þó sumir hafi kannski blotnað aðeins meira en aðrir :)











