Í Síðuskóla sýnum við ábyrgð, virðingu og vináttu
Snjallvagninn er fræðsluverkefni sem ferðast á milli grunnskóla út um allt land til að vekja nemendur til umhugsunar um hegðun sína og líðan á netinu. Það er enginn annar en Lalli töframaður sem sér um fræðslu Snjallvagnins en hann notar meðal annars til þess töfra og létt glens.
Barnamenningarhátíð á Akureyri fer fram þessa dagana og liður í henni er Góðgerðar- og menningarkaffihús sem 5. bekkur Síðuskóla hélt í dag. Þar seldu nemendur muni sem þeir hafa búið til undanfarnar vikur ásamt því að flytja tónlistar- og dansatriði. Á kaffihúsinu var boðið upp á veitingar sem nemendur bjuggu sjálfir til. Stórgóð mæting var og nánast fullt út úr dyrum. Nemendur munu á næstunni fara í heimsókn á Barnadeild SAK og færa þeim ágóðann.
Við erum stolt af okkar fólki, bæði nemendum og starfsfólki. Við þökkum foreldrum fyrir þeirra aðstoð og öllum gestum kærlega fyrir komuna og stuðninginn!
Á hverju vori er börnum á aldrinum 6-12 ára boðið að kjósa uppáhalds barnabækur ársins. Nemendur fylla út kjörseðil og skila á bókasafnið.
Barnabókavörður Amtsbókasafnsins safnar saman öllum kjörseðlum frá skólum á Akureyri og dregur út einn heppinn þátttakanda í hverjum skóla.
Að þessu sinni var það Óliver Örn Stefánsson í 3. bekk sem hafði heppnina með sér og fékk fallega og fróðlega bók um líkamann að launum.